Silfurberg
Silfurberg

Silfurberg

Sitjandi: 550 manns

Silfurberg er tilvalinn fyrir hvers kyns veislur, kvöldverðarboð, kokteilboð, sýningar eða tónleika.

Silfurberg er helsti ráðstefnusalur Hörpu og er á annarri hæð hússins. Silfurberg er sérhannaður sem ráðstefnusalur með fyrsta flokks ljósabúnaði, hljóðkerfi og túlkaklefum. Salurinn hentar einnig vel fyrir rafmagnaða tónlist og veisluhöld. Sviðið getur verið í mismunandi stærðum og er færanlegt. Sætin eru laus og gólfið flatt, en hallandi sæti við enda salarins. Hægt er að skipta salnum í tvennt með fellivegg sem er hljóðeinangraður og rúmar þá hvor salur um sig um 300 gesti í sæti.

Tvennar hljóðeinangraðar dyr tengja Silfurberg og Norðurljós, en hægt er að samnýta salina fyrir stærri viðburði.

Hægt er að leigja svæðið Eyri fyrir utan Silfurberg aukalega eða sér. Í Eyri er hátt til lofts og útsýnið frábært sem gerir þetta að upplögðu rými fyrir standandi kokteilboð.

Hafðu samband: catering@khveitingar.is eða í síma 519 9771.