Kolabrautin

Kórónaðu kvöldið með málsverði í hjarta Hörpu

Kolabrautin er nútímalegur veitingastaður þar sem íslenskt úrvals hráefni er matreitt samkvæmt aldalöngum matarvenjum frá Miðjarðarhafinu.

Kolabrautin státar af einstöku útsýni og tekur allt að 180 manns í sæti.

Hvort sem þú vilt njóta fordrykkjar fyrir málsverðinn eða fá þér drykk áður eða eftir að þú nýtur listarinnar í Hörpu þá er bar Kolabrautarinnar fullkominn viðkomustaður. Stolt þessa glæsilega bars sem er á mörgum stöllum eru kokkteilarnir en þess má geta að bar Kolabrautarinnar var valinn besti kokkteilbarinn árið 2012 af Reykjavík Grapevine.

Hafðu samband: veislur@harpa.is eða í síma 519 9700.

Viltu bóka veislu í Hörpu?

Ekki hika við að hafa samband og fá upplýsingar um veislur, sali, rými eða fundarherbergi:

veislur@harpa.is eða í síma 519 9700