Björtuloft

Útsýnið fylgir með

Björtuloft eru staðsett á efstu hæðum Hörpu — með stórbrotnu útsýni yfir borgina, hafið og Esjuna.

Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, einkasamkvæmi, móttökur og fundi.

Um er að ræða 400 m² rými á tveimur hæðum. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á stórkostlegar svalir með útsýni yfir höfnina og borgina. Salurinn rúmar um 100 manns á hringborðum á efri hæð og um 40 manns á neðri hæð.

Ef um standandi móttöku er að ræða komast um 200 – 350 manns fyrir á báðum hæðum. Björtuloft er búið sýningartjaldi og skjávarpa á 7. hæð og er eini lokaði salurinn í Hörpu sem býður uppá glæsilegt útsýni.

Kynntu þér málið nánar, sendu fyrirspurn á veislur@harpa.is eða hringdu í síma 519 9700.

Viltu bóka veislu í Hörpu?

Ekki hika við að hafa samband og fá upplýsingar um veislur, sali, rými eða fundarherbergi:

catering@khveitingar.is eða í síma 519 9771

Björtuloft
Útisvalir: 289 m2
6. hæð: Salur 190m² - 40 sæti (veisluuppröðun)
7. hæð: Salur 217m² - 100 sæti (veisluuppröðun)
Salir samtals: 407m²
Standandi: 200 - 350 people (móttökuuppröðun)

Sýndarferð

Skoðaðu Björtuloft með Google kortinu
6. hæð

7. hæð